Atlantsolía hefur hlotið viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2026 hjá Keldunni og Viðskiptablaðinu.
Viðurkenningin er veitt fyrirtækjum sem uppfylla ströng fjárhagsleg viðmið og sýna fram á jákvæða afkomu, tekjur, eignir og eiginfjárhlutfall. Hún endurspeglar þannig stöðugleika og góðan árangur í rekstri.
Við erum stolt af því að vera í hópi Fyrirmyndarfyrirtækja í rekstri og þakklát fyrir þessa viðurkenningu sem er staðfesting á traustum rekstri og mikilvægu framlagi okkar frábæra starfsfólks.