Þrettándahátíð - kakó, kleinur og flugeldasýning 5. janúar 2012
Á morgun, föstudag, mun Atlantsolía bjóða upp á heitt kakó og kleinur á Þrettándahátíð(brennu) Vesturbæjar. Hátíðin hefur verið árviss viðburður foreldrafélaga grunnskóla Vesturbæjar og að jafnaði mjög vel sótt. Dagskráin hefst kl. 18.00 við KR heimilið en brennan verður tendruð klukkan 18.30. Jafnframt verður flugeldasýning kl. 18.50.
Atlantsolía hvetur alla dælulykilshafa sem og aðra landsmenn til að mæta á þennan skemmtilega viðburð með alla fjölskylduna.
Nánar um hátíðina má finna hér.
Staðsetninguna má finna hér.