Vann 42" Samsung flatskjá 28. apríl 2014
Hann Þorgeir Hauksson úr Mosfellsbænum var heldur betur ánægður þegar hann fékk þær fréttir að hann hefði unnið glæsilegan 42" Samsung flatskjá í dælulykilsleik Atlantsolíu. "Þetta er stórkostlegt. Ég get þá skipt út gamla 70 kg túbusjónvarpinu". Nafn Þorgeirs var dregið úr hópi dælulykilshafa sem hafa notað lykilinn frá því leikurinn hófst þann 11. apríl sl. Áður en árið er á enda munum við draga út 3 flatskjái til viðbótar auk þúsunda annarra vinninga. Notaðu dælulykilinn og þú ert í pottinum. Vinningaskrá má finna hér - þar er líka hægt að sækja um dælulykil. www.atlantsolia.is/leikur/
Annað fréttnæmt

Vistvænna bensín 95 E10 á öllum dælum!
Við höfum skipt úr 95 E5 yfir í 95 E10 sem þýðir um 10% etanól iblöndun í bensínið okkar.
Þessi aukning á íblöndun etanóls veldur minni losun koltvísýrings út í andrúmsloftið og því má segja að bensínið okkar sé vistvænna.
Allir bensínknúnir bílar frá árinu 2011 geta dælt E10 eldsneytinu en ef þú ert á bíl árgerð 2010 eða eldri mælum við með að þú kynnir þér hvort hægt sé að dæla E10 á bílinn,t.d hér
Varðandi notkun á 95 E10 fyrir önnur vélknúin ökutæki og vélar bendum við á upplýsingar frá viðkomandi framleiðanda.

Bilun í uppgjörskerfi Salt Pay
Bilun í uppgjörskerfi Salt Pay.
Vegna tæknilegrar bilunar í uppgjörskerfi Salt Pay voru úttektir með dælulyklum og greiðslukortum sem teknar voru á bensínstöðvum okkar 13. maí sl. skuldfærðar í morgun, 17. Júní.

Okkar lægsta eldsneytisverð nú einnig á Akureyri!
Nú bjóðum við okkar lægsta eldsneytisverð einnig á bensínstöð okkar við Baldursnes Akureyri og bætist hún þá við Kaplakrika og Sprengisand þar sem engir afslættir gilda, heldur bara okkar langslægsta verð. Við vonum sannarlega að Norðlendingar kunni að meta þennan valkost í eldsneytiskaupunum enda búbót fyrir neytendur.