Sparaksturskeppnin 2010 25. maí 2010
Í dag, miðvikudaginn 26. maí, fer fram Sparaksturskeppnin 2010 en það er samstarfsverkefni FÍB og Atlantsolíu. Þetta er í 5 sinn sem keppnin er haldin en hún er liður í að efla vitund og þekkingu bíleigenda fyrir sparakstri og umferðaröryggi. Að þessu sinni eru 15 bílar skráðir til leiks frá 5 bílaumboðum en keppt verður í 3 flokkum bensínbifreiða og díselbifreiða. Eknir verða rúmir 140 kílómetrar, sem leið liggur frá bensínstöð Atlantsolíu við Bíldshöfða, upp Mosfellsdalinn, niður með Þingvallavatni, í gegnum Selfoss og Þrengslin til Reykjavíkur.
Það verður séra Karl V. Matthíasson, formaður Umferðarráðs sem ræsa mun keppendur klukkan 13.30 en áætlað er að fyrstu bílar komi í mark um 2 tímum síðar. Gestum og gangandi verður boðið upp á pylsu og kók á meðan keppninni stendur.