Sönn saga af eldsneytiskaupum 31. október 2007
Á dögunum fengum við sent þakkarbréf frá viðskiptavin.
-----Original Message-----
Sent: 26. október 2007 10:45
To:
Subject:Dælulyklar læstir fyrir bensín eða dísel
Þakka ykkur fyrir þessa ábendingu og að Atlantsolía geri okkur ökumönnum/konum þetta kleift. Ég er sérstaklega ánægður með þennan möguleika þar sem mér varð á að setja bensín á Pajero-inn, sem er dísil á 38¨ með 92L tanki. Ég uppgötvaði það ekki fyrr en eftir um 60km. akstur og þá voru góð ráð dýr eða öllu heldur öll ráð voru dýr.
Í janúar 2005 ákvað ég að bjóða konunni minni í jeppatúr á Skjaldbreiður, um morguninn renndi ég niður á Suðurgarð í Hafnarfirði og skellti á hann um 45L af bensíni. Við rennum svo af stað og þar sem bensínið er léttara en dísil varð ég ekki var við mistökin fyrr en við komum upp í Gjábakkahraun og hristingur farinn að aukast. Ég hélt í fyrstu að olíusían væri stífluð svo ég skipti um hana og þá flaut bensínið upp og allt hrökk í gang með eðlilegum hætti og við héldum för áfram. Þegar við erum kominn hálfa leiðina á milli Dímons og Kálfatinda, fór allt í einu allt lífsmark úr honum. Í -9°C húktum við í sjö tíma við tilraun til viðgerðar og svo að bíða eftir aðstoð og var það mikil raun fyrir konuna mína. Ég uppgötvaði mistök mín ekki fyrr en bíllinn var komin inn í bílskúr heima, því aldrei datt mér í hug að ég gæti verið svona "vitlaust" að setja bensín á dísil bílinn minn. Við tók kaup á: nýjum dísum, kaup á notuðu olíuverki sem urðu svo tvö og endalausar verkstæðaferðir og kostnaðurinn vel á þriðja hundraðið og er vinna í bílskúrnum ekki með þar sem ég framkvæmi hana sjálfur.
Það er hægt að hafa gaman af þessu eftir á enda þreytist konan mín ekkert á að atast í mér eins og "mundu dísil elskan" en það var ekkert gaman að þessu á meðan á þessu stóð.
Kær kv. Valur Sveinbjörnsson