Rekstraraðili óskast - Kópavogsbraut 115 13. mars 2011
Atlantsolía leitar að aðila til að reka söluturn félagsins að Kópavogsbraut 115. Bensínstöðin að Kópavogsbraut var sú fyrsta sem fyrirtækið tók í notkun og hefur markað sér sterkan sess á markaðssvæði sínu.
Við leitum að traustum og ábyggilegum aðila sem vill verða hluti af uppbyggingu á ört vaxandi fyrirtæki. Mikill kostur er að þekkja til slíks reksturs en þó ekki skilyrði.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Ragna Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri Atlantsolíu. Netfang: gudrun@atlantsolia.is