Okkar lægsta eldsneytisverð nú einnig á Akureyri! 25. september 2020
Nú bjóðum við okkar lægsta eldsneytisverð einnig á bensínstöð okkar við Baldursnes Akureyri og bætist hún þá við Kaplakrika og Sprengisand þar sem engir afslættir gilda, heldur bara okkar langslægsta verð. Við vonum sannarlega að Norðlendingar kunni að meta þennan valkost í eldsneytiskaupunum enda búbót fyrir neytendur.
- Enginn afsláttur, bara okkar lægsta verð á landinu!
- Engin meðlimakort eða skráning í sérstök kjör – bara mæta og dæla hvenær sem er enda er opið allan sólarhringinn á stöðvunum okkar
- Dælulykilinn virkar alveg eins og áður, á öllum stöðvum Atlantsolíu og með þínum afsláttarkjörum nema á Sprengisandi og í Kaplakrika, þar er enginn afsláttur - bara okkar langbesta verð!
- Dælulykilinn virkar sem greiðslumiðill á Sprengisandi og í Kaplakrika og kvittanir sendast í tölvupósti eins og alltaf.