Fyrir skömmu lauk lestun á nýjum farmi félagssins. Að þessu sinni kom farmurinn með norska olíuskipinu Solstraum. Solstraum er smíðað árið 1990 og tekur um 10 milljón lítra af eldsneyti. Með því kom bensín, diesel- og skipagasolía en lestun tók um 15 tíma. Skipið var um 4 sólarhringa á leiðinni en það hafði tafist um tvo daga í Evrópu vegna óveðurs. Áhöfn telur 11 manns flesta frá Fillipseyjum en yfirmenn eru norskir.