Myndagetraun - Akureyri 28. mars 2007
Í framhaldi af markpósti sem sendur var til Akureyringa þá hafa fjölmargir hafa haft samband með getgátur um hvaða skip liggja á Pollinum.
Þrautin er nokkuð þung því ekki hefur verið í nein opinber gögn að leita þar sem dagsetning myndatökunnar liggur ekki fyrir.
Tilgáta frá Georgi Ólafi Tryggvassyni flugumferðarstjóra, sem barst í dag, þykir sú sennilegasta sem fram hefur komið en heimildarmaður hans, Snorri Snorrason skipaáhugamaður og fv. flugstjóri, segir skemmtiferðaskipið heita Arandora Star. Með þær upplýsingar leitaði Georg til Sverris Pálssonar fyrrum skólastjóra gagnfræðaskólans á Akureyri, sem staðfestir tilgátu Snorra. Georg og sonur hans lögðust í heimildarvinna á netinu og eftir samtals 6 tíma vinnu bar hún árangur sem sjá má á vefslóðunum hér að neðan.
http://www.bluestarline.org/arandora.html
http://www.bluestarline.org/arandora.html
Skipið heitir líklega Arandora Star - 16.000 tonna háklassa gufuknúið skemmtiferðaskip sem skotið var niður af þýskum kafbát júlí 1940 þar sem hátt á 900 manns fórust - mest þýskir stríðsfangar.
Um þá sögu má lesa hér.
http://uboat.net/allies/merchants/ship/406.html
Um þá sögu má lesa hér.
http://uboat.net/allies/merchants/ship/406.html
Varðandi eftirlitsskipið þá telur Georg skipið heita Pollux sem var franskt eftirlitsskip sjóhersins.
Varðandi skemmtiferðaskipið:
Arandora Star átti 4 systurskip - á endanum hlutu þau öll sömu örlög.
Almeda, sem skotið var niður af U-96 1941, með því fórust 194. Andalucia, sem skotið var niður 1942 af U-107, 4 fórust af rúmlega 200 manns. Avelona, sem skotið var niður af U-43, 3 fórust. Avila, skotin niður af U-201, 62 fórust.

Aðrar tilgátur um heiti skipana eru:
Varðandi skemmtiferðaskipið:
Milwaukee - skip sem Adolf Hitler átti og kom m.a. með Evu Braun til Akureyrar skömmu áður en seinni heimstyrjöldin skall á.
http://outdoors.webshots.com/photo/2508967790099634290hgMUKT
http://outdoors.webshots.com/photo/2508967790099634290hgMUKT
Varðandi minna skipið:
Fylle - danskt varðskip sem átti að gæta íslensku lögsöguna - en lónaði mest á Pollinum á Akureyri þegar til Íslands kom. Var stundum talað um að ástand ríkti þá á Akureyri.