Kántríhátíð á Bíldshöfða 8. ágúst 2006
Vel tókst til við fyrstu kántríhátíð fyrirtækisins. Hátíðin fór fram á bensínstöðinni við Bíldshöfða á síðasta föstudag en boðið var upp á pylsur og kók í bland við sérvalda kántrítónlist. Það voru Sylvía og Anna, markaðsfulltrúar, sem báru hitan og þungan af að framreiða góðgætið og höfðu þær á orði að slíka uppákomu þyrfti að endurtaka að ári
.
.