Húsgagnahöllin - stöplar settir niður 28. október 2005
Fjórir stöplar af átta voru settir niður í dag. Á stöplana koma dælueyjar sem bensíndælurnar munu hvíla á en í lok næstu viku er áætlað að ljúka því verki. Í vikunni var sett upp grind fyrir verðskiltin en hún hvílir á 12 tonna steypuklumpi sem tryggja mun að skiltið haldist á sínum stað.