Hafnarfjörður: viðskiptavinur nr. 5000
11. maí 2004
Andrés Haukur Hreinsson smiður frá Álftanesi var viðskiptavinur nr. 5000 á sjálfsafgreiðslustöð fyrirtækisins í Hafnarfirði. Að launum fékk Andrés ostakörfu frá Ostabúðinni í Hafnarfirði sem staðsett er þar skammt frá. Andrés var á rúntinum í Firðinum með börnin sín tvö þau Björn Kristinn og Ingibjörgu þegar ákveðið var að fylla tankinn og sáu þau ekki eftir því. Sjálfur segist hann að jafnaði skipta við nýju stöðina þegar því er við komið og að einnig hafi hann verslað mikið í Kópavoginum. Það var Ólafur Baldursson, sölustjóri innanlands, sem afhenti Andrési körfuna.