Góðir gestir í heimsókn (1) 23. janúar 2007
Starfsfólk Atlantsolíu fékk góða gesti í heimsókn þegar drengirnir á sambýlinu Trönuhólum 1 komu í heimsókn. Ástæðan var að sú að fyrirtækið veitir þeim stuðning við eldsneytiskaup en félagarnir reka sjálfir Skoda Octavia bifreið sem þeir nota nær daglega. Á myndinni má sjá frá vinstri, Símon Kjærnested, fjármálastjóra Atlantsolíu, Ólaf Jónsson, Andra Guðnason, Jón Einarsson(Nonni) aðstoðarmann, Arnar Jósteinsson, Friðrik Atlason aðstoðarforstöðumann og Albert Þór Magnússon framkvæmdastjóra. Sambýlið við Trönuhóla var tekið í notkun árið 1982 en þar hafa þeir allir dvalið síðan.