Góðar móttökur á menningarnótt 23. ágúst 2005
Fjölmargir gestir menningarnóttar Reykjavíkur lögðu leið sína að Atlantsolíubílnum sem staðsettur var fyrir framan Menntaskólann í Reykjavík þennan dag. Í bílnum var gestum boðið upp á nýbakaðar kleinur, heitt kakó og kaffi. Með framtakinu vildi starfsfólk Atlantsolíu þakka góðar viðtökur á liðnum mánuðum og um leið efla tengslin við núverandi og tilvonandi viðskiptavini.