Atlantsolía tók þátt í hinu árlega 1. apríl gabbi í samstarfi við fréttaveituna Vísir.is. Í frétt sem þar birtist var sagt frá því að Atlantsolía sæti uppi með heilan skipsfarm af bensíni frá Líbíu sem félagið gæti ekki selt. Ástæðan væri viðskiptabann á Líbíu sem sett hafi verið á með ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Stæði því 100 heppnum viðskiptavinum frítt bensín til boða. Hátt í 20.000 gestir vefsíðunnar smelltu á linkinn sem fylgdi fréttinni en hana má sjá í heild hér.