Fjölmenni við opnun 7. desember 2007
Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri Árborgar, opnaði formlega í gær 12 bensínstöð fyrirtækisins. Fjölmenni var við opnunina en auk starfsmanna komu fulltrúar Árborgar, eigendur og hluti starfmanna SS Verktaka sem byggðu stöðina, fulltrúar Hönnunar ásamt fleiri gestum. Bæjarstjóranum fórst vel úr hendi að dæla eldsneyti á Grummanninn, sem er sýningarbifreið Atlantsolíu, sem hefur nú í þriðja sinn á þessu ári þjónað þessu hlutverki.
Jafnframt opnuninn tilkynnti Albert Þór Magnússon framkvæmdastjóri Atlantsolíu, hægra megin hér á myndinni fyrir neðan, að tiltekinn ágóði af hverri áfyllingu, fyrsta mánuðinn, muni renna í Styrktarsjóð Fsu Körfubolta sem vinnur að því að styrkja líknardeild Krabbameinsfélaganna á Suðurlandi. Með honum á myndinni er Brynjar Karl Sigurðsson hjá FSU.