Fjölmargir á tækjadegi Atlantsolíu 28. mars 2004
Fjölmargir lögðu leið sína á Tækjadag Atlantsolíu sem fram fór á Kópavogshöfn og í vöruhúsi Atlantsskipa. Á deginum voru sýnd fjölmörg tæki til jarðvinnslu og flutninga. Fyrirtækin sem sýndu voru: Hekla véladeild, Íshlutir, Vélar og þjónusta, Vélaver, Merkúr og Bræðurnir Ormsson. Jafnframt því sem gestir skoðuð tæki fór fram hönnunarkeppni verkfræðinema Háskóla Íslands. Keppnin var sú sama og haldin var fyrir skömmu í Háskólabíói en hún fellst í að búa til tæki sem flytur bolta 6 metra. Er tækinu jafnframt gert að varpa boltanum yfir slá og grípa hann aftur.
Þetta er í fyrsta sinn sem Tækjadagur Atlantsolíu er haldinn en viðskiptavinum sem og forsvarsmönnum jarðvinnu og verktakafyrirtækja var boðið til dagsins.
Sérstaka athygli á sýningunni vakti Mini Monster eða “Big Foot” – sem er mikið breyttur Ford F350 af nýjustu gerð. Bíllinn sem boðinn var sérstaklega til sýningarinnar er breyttur af Fjallasporti. Í honum er 6 lítra turbo Intercoolervél sem með nýrri gerð tölvukubbs skilar 525 hestöflum. Bíllinn er allur hinn verklegasti og meðal annars með loftlæsingum á öllum hjólum, hann er á 46" Mickey Thompson dekkjum með 4" pústkerfi og þá er hann búinn fullkomnu hljóðkerfi svo eitthvað sé nefnt.