AO styrkir heiðurborgara í Kópavogi 31. október 2006
Í dag fékk starfsfólk Atlantsolíu góða heimsókn en þar voru á ferð félagar í íþróttafélaginu Glóðin í Kópavogi. Tilefnið var að fyrirtækið styrkir íþróttastarf hópsins en styrkurinn mun nýtast til ýmissa málefna sem hópurinn stendur fyrir. Alls telur hópurinn um eitt hundrað manns en dagskrá þeirra samanstendur af utanlandsferðum, sýningum, þátttöku í mótum ásamt almennu félagsstarfi. Á myndinni má sjá Guðrúnu Sturludóttur starfsmann Atlantsolíu ásamt hluta hópsins sem kom í heimsókn.