Aðstoðin vel þegin 12. mars 2005
Frá fyrsta degi hefur Atlantsolía boðið viðskiptavinum aðstoð við ádælingu eldsneytis á Sprengisandi. Þessi þjónusta hefur verið kærkomin og koma þar nokkur atriði til. Fyrir það fyrsta eru flestir viðskiptavinir vanir svokölluðum mótordrifnum sjálfsölum. Slíkir sjálfsalar gleypa kortið og renna því síðan út eftir að hafa skannað það. Hinir nýju sjálfsalar Atlantsolíu eru hins vegar handdrifnir sem þýðir að korthafi heldur í enda kortsins allan þann tíma sem það er skannað. Þessu er margir óvanir. Eins hefur borið á því að korthafar átta sig ekki á því að sjálfsali er við hverja dælu en ekki aðeins einn miðlægur eins og víða tíðkast. Með því að hafa sjálfsala við hverja dælu eykst öryggi við innslátt lykilorða þar sem enginn ókunnugur stendur að baki viðskiptavinar. Hefur þetta mælst mjög vel fyrir. Að endingu má nefna mikilvægi þess að fylgja leiðbeiningum á dæluskjá. Sé skjáleiðbeiningum ekki fylgt eftir getur sá tími sem tekur að versla eldsneytið lengst til muna. Þannig þarf oft að byrja dæluferlið upp á nýtt með innslátt lykilorðs. Áætlað er að veita aðstoð á Sprengisandi út mars mánuð.