3 ár í samkeppni 8. janúar 2007
Í dag eru þrjú ár síðan Atlantsolía hóf að selja bensín til almennings og rauf þar með 56 ára gamla fákeppni gömlu olíufélaganna. Salan hófst á fyrstu bensínstöð fyrirtækisins við Kópvogsbraut 115 og voru viðtökur framar vonum. Þannig seldist upp á 5 dögum birgðir sem áttu að duga í 4 vikur. Það er til marks um sölu þessa daga að á einum degi seldist jafn mikið og á einum mánuði hjá fyrri rekstraraðila bensínstöðvarinnar. Frá þeim tíma sem Atlantsolía hóf starfssemi hefur fyrirtækið kappkostað að koma með nýjunar til viðskiptavina. Fyrst ber þar að nefna Dælulykilinn en með honum spara viðskiptavinir tíma og einfalda bensínkaupin stórlega. Þá var Atlantsolía fyrst með sjálfssala við hverja bensíndælu á stöðvum sínum með tilheyrandi tímasparnaði. Eins var fyrirtækið fyrst að kynna kvittun í tölvupósti og heimsendingarþjónustu Dælulykla sem hafa fundist eftir að hafa glatast. Forráðamenn Atlantsolíu hafa kappkostað að standa fyrir samkeppni hér á landi og á þessum tímamótum vill fyrirtækið þakka þeim traustu viðskiptavinum sem eingöngu skipta við fyrirtækið.