2 kr. til Krafts 16. febrúar 2017
Kraftur er einstakt félag sem styður við bakið á ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein. Atlantsolía er stoltur stuðningsaðili Krafts og í dag fimmtudag renna 2 kr. af hverjum seldum lítra til stuðnings félaginu. Hér getur þú sótt um Krafts dælulykil eða skráð lykilinn þinn þannig að hann styðji þeirra góða starf.