Á næstu dögum mun Atlantsolía gefa viðskiptavinum sínum á Sprengisandi Gevalia kaffi, Swiss Miss kakó og Ömmubaksturs kleinur. Áætlað er að gefa 10.000 ömmukleinur áður en að yfir lýkur en tilefnið er að eitt og hálft ár er liðið frá því að bensínsala hófst. Á þeim tíma hefur myndast sterkur hópur viðskiptavina sem er sá kjarni sem knýr samkeppnisafl Atlantsolíu. Vill starfsfólk fyrirtækisins þakka fyrir það. Það voru Borghildur Guðjónsdóttir, Ómar Sigurjónsson og Hilmar Nikulás Þorleifsson, sem fyrst nutu veitinganna sem fram eru bornar úr söluvagni á Sprengisandi.